Þekkingarsetur um þjónandi forystu

Forvarnir kulnunar í starfi og heilsueflandi þjónandi forysta
Vanlíðan í starfi er vaxandi vandi á vinnustöðum og mikilvægt er að leiðtogar og starfsmenn séu meðvitaðir um og beini sjónum að heilbrigðu starfsumhverfi og viðurkenndum áhrifaþáttum á vinnustað sem geta eflt vellíðan og dregið úr líkum á kulnun í starfi.

Þekking okkar um heilbrigt starfsumhverfi byggist á rannsóknum ýmissa frumkvöðla sem vörpuðu ljósi á sálfélagslega áhrifaþætti á vinnustað og tengsl þeirra við starfsánægju, vellíðan og forvarnir gegn kulnun í starfi. Rannsóknir þessar ná aftur um fjörtíu ár þegar Christina Maslach birti fyrstu rannsóknir sínar um áhrifaþætti kulnunar í starfi og á svipuðum tíma birtu Karasek og Theorell tímamótarannsóknir sínar um samband álags, áhrifa og stuðnings við líðan fólks í starfi.

Nýr bókarkafli varpar ljósi á stöðu þekkingar og rannsóknir síðustu ára um áhrifaþætti á vinnustað sem tengjast kulnun í starfi, árangursríkum forvörnum og heilsueflandi þjónandi forystu. Kaflinn lýsir niðurstöðum fræðilegs yfirlits um áhrifaþætti kulnunar í starfi sem snúa einkum að langvarandi álagi og vandamálum í starfi, takmörkuðum áhrifum á eigin störf og takmörkuðum félagslegum stuðningi starfsfólks og stjórnenda.

Rannsóknir sýna að sjálfræði getur verndað starfsmann fyrir neikvæðum áhrifum álags og sama á við um félagslegan stuðning. Þá sýna rannsóknir að aðgangur að bjargráðum sem fylgja ábyrgðarskyldu og áhrif á eigið starf geta unnið gegn vanlíðan fólks í starfi. Sýn á tilgang starfa og innri starfshvatar efla starfsánægju og sama gildir um umbun sem er í takt við framlag.

Skýr ábyrgðarskylda, áhrif á eigið starf og mótun eigin starfs (e. job crafting) geta minnkað áhrif álags á kulnun í starfi, jafnvel þegar álag er mikið. Þá getur sveigjanleiki í starfi, t.d. í sambandi við tímasetningu og staðsetningu verkefna, dregið úr áhrifum álags á kulnunareinkenni.

Gagnkvæmur félagslegur stuðningur á vinnustað getur dregið úr líkum á kulnun í starfi og felst meðal annars í uppbyggilegum starfsanda, virðingu, kurteisi, sameiginlegum gildum og styðjandi samskiptum. Félagslegur stuðningur í starfi getur virkað sem forvörn kulnunar í starfi, jafnvel þegar áhrif á eigin störf eru lítil.

Hér fyrir neðan er mynd af líkani sem byggir á stöðu þekkingar og lýsir samspili stuðnings í starfi og ábyrgðarskyldu sem myndar ramma starfsins. Innan ramma starfsins er starfsmanni falið frelsi til að hafa áhrif á eigið starf, móta eigið starf (e. job crafting) og skapa nýjar hugmyndir.

Heildræn nálgun forystu sem beinist að viðurkenndum áhrifaþáttum á vinnstað er mikilvæg til að tryggja árangursríkar forvarnir kulnunar í starfi og brýnt að viðbrögð og meðferð við kulnun í starfi snúi markvisst að þessum áhrifaþáttum. Mikilvægt er að stjórnendur og leiðtogar séu meðvitaðir um og beini sjónum að viðurkenndum áhrifaþáttum kulnunar í starfi og efli jafnframt virka þátttöku og samvinnu starfsfólks og annarra hlutaðeigandi til forvarna gegn kulnun í starfi.

Heilsueflandi þjónandi forysta beinist að því að efla þætti á vinnustað sem geta verndað starfsmenn gegn því að fá einkenni kulnunar í starfi og lýst er hér að ofan. Hér fyrir neðan er mynd af líkani sem lýsir heilsueflandi þjónandi forystu með heildrænni nálgun sem eflir heilbrigt starfsumhverfi og vellíðan með áherslu á 1) sjálfræði og gagnkvæman stuðning, 2) persónulegan styrk og innri starfshvöt og 3) sameiginlegan tilgang og skýra ábyrgðarskyldu.

Heimild: Sigrún Gunnarsdóttir (2021). Heilsueflandi forysta, heilbrigt starfsumhverfi og vellíðan í starfi. Staða þekkingar. Rannsóknir í viðskiptafræði II. Ritstjórar: Gylfi Dalmann, Runólfur Smári Steinþórsson og Þórhallur Örn Guðlaugsson. Háskólaútgáfan. Bls. 167- 184.

The post Forvarnir kulnunar í starfi og heilsueflandi þjónandi forysta appeared first on Þekkingarsetur um þjónandi forystu.

Þjónn fólksins
Volodymyr Zelensky forseti Ukraínu hefur stigið fram sem áhrifamikill leiðtogi sem hefur sameinað þjóð sína og uppörvað hana á örlagaríkum tímum innrásar í landið. Zelenskyy hefur ekki síst vakið athygli fyrir að koma fram sem jafningi fólksins og hefur bókstaflega stigið fram sem leiðtogi sem er fremstur meðal jafningja.

Framganga Zelensky á tímum innrásarinnar í Úkraníu sýnir forystu sem mótast af einlægum vilja til þjóna sem og hugrekki og járnvilja til að efla varnir lands og þjóðar.

Þessar áherslur og aðgerðir Zelensky hafa vakið athygli og aðdáun um heim allan og í viðtali á RÚV 6. mars s.l. talaði Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands um Zelensky sem ,,þjóðhetju Úkraínumanna og tákn hugrekkis“ og að Zelensky væri ,,táknmynd þess sem er gott og gilt í þjóðarleiðtoga“.

Þjónn fólksins
Aðdragandi forsetatíðar Zelensky er hlutverk hans sem forseti Úkraínu í sjónvarpsþætti sem bar heitið Þjónn fólksins (Servant of the People). Þessi reynsla leiddi síðar til framboðs hans til forseta undir nafni stjórnmálaflokks sem ber sama heiti og sjónsvarpsþátturinn. Zelensky hlaut 73% atkvæða í forsetakosningunum og nýtur nú sívaxandi trausts meðal þjóðarinnar.

Þjónn sem verður leiðtogi
Leiðtogi sem fléttar saman mýkt þjónsins og staðfestu forystunnar endurspeglar megináherslur hugmyndafræði þjónandi forystu sem snúast um 1) einlægan áhuga á hagsmunum annarra, 2) auðmýkt sem byggir á innra öryggi og 3) stefnu sem sameinar fylgjendur. Í þjónandi forystu er leitast við að skapa jafnvægi mildi og festu; ástríki og aga; frelsis og ábyrgðar.

Adam Grant prófessor við Wharton háskólann og höfundur fjölmargra bóka um stjórnun og forystu er einn þeirra sem hefur fjallað um einstaka forystuhæfileika og hugrekki Zelensky. Grant skrifar um einstaka hæfileika Zelensky að geta fléttað saman mjúka og harða hlið leiðtogans; að geta þjónað fólkinu og að gera barist fyrir fólkið. Grant lýsir forystu Zelensky meðal annars þessum orðum:

Við fylgjum leiðtogum sem berjast fyrir okkur og við færum fórnir fyrir leiðtoga sem þjóna okkur

We follow the leaders who fight for us—and we make sacrifices for the leaders who serve us

Árangur þjónandi forystu kemur fram í rannsóknum og nýlegum dæmum sem sýna að áherslur og aðferðir þjónandi forystu reynast árangursríkar í forystu þjóðarleiðtoga eins og framganga Jacindu Ardern forsætisráðherra Nýja Sjálands sýnir meðal annars. Gagnsemi þjónandi forystu hefur jafnframt komið sérstaklega fram á tímum kreppu, til dæmis í árangri ýmissa leiðtoga á tímum Covid-19.

Áhugi á þjónandi forystu hefur aukist undanfarin ár og rannsóknri sýna að hún getur skilað góðum árangri og eflt vellíðan víða í samfélaginu, meðal annars í heilbrigðisþjónustu og í skólum. Þjónandi forysta getur haft góð áhrif á ferðaþjónustu og styrkt árangur íþróttaþjálfunar. Þá getur hagnýting þjónandi forystu haft góð áhrif á rekstur og árangur flugfélaga og haft góð áhrif á líðan og árangur starfsfólks á almennum markaði.

Mynd: https://www.labour.org.nz/jacindaardern

The post Þjónn fólksins appeared first on Þekkingarsetur um þjónandi forystu.

Fjölbreytileiki, inngilding og þjónandi forysta
Sannur áhugi á öðrum er leiðarstef þjónandi forystu og snýst um að laða fram hugmyndir, krafta og virkni hvers og eins til að vinna að sameiginlegum tilgangi og markmiðum. Hlutverk leiðtogans er að gefa öllum tækifæri til þátttöku og í raun tækifæri til forystu eftir því sem þekking, reynsla og aðstæður gefa tilefni til.

Talað er um að þjónandi forystu sé starfsandinn á hverjum stað, menningin sem mótar samskipti, skipulag og verkefni og hvílir á sameiginlegum gildum og sameiginlegri sýn. Fjöldi rannsókna sýnir að nálgun þjónandi forystu hefur góð áhrif á vellíðan, skapandi áherslur og árangur þar sem hugmyndir og kraftar sem flestra eru virkjaðir.

Fjölbreytileiki og fjölmenning

Mikilvægi fjölbreytileika og fjölmenningar er æ meira áberandi í daglegri umræðu um atvinnulífið. Það er gömul saga og ný að fjölbreytni í starfsmannahópi skapar auknar líkur á góðri frammistöðu, skapandi lausnum og auknum afköstum hópsins og getur jafnvel skapað þeim verðmætt samkeppnisforskot.

Þegar rætt er um fjölbreytileika er annars vegar átt við fjölbreytileika í sambandi við ytri og lýðfræðileg þætti svo sem aldur og kyn og hins vegar innri undirliggjandi þætti til dæmis gildismat og viðhorf.

Starfsmannahópar sem einkennast af fjölbreyttum undirliggjandi þáttum eru líklegri til þess að bæta frammistöðu og samkeppnisforskot fyrirtækis með því að miðla ólíkri reynslu, koma með ólík sjónarhorn og auðga teymið með fjölbreyttu tengslaneti og uppsprettu upplýsinga til að komast að sameiginlegri niðurstöðu.

Inngilding og þjónandi forysta

Fjölbreytileiki á vinnustað kallar á stjórnun og forystu sem laðar fram og styður fjölbreyttan hóps starfsmanna og virkjar sem flesta með inngildingu (e. inclusion). Mikilvægt er að í daglegri umræðu um fjölbreytileika á vinnustað gleymist ekki að taka mið af lykilþætti fjölbreytileikans sem er inngilding allra meðlima starfsmannahópsins. Hér er átt við að hver og einn upplifi sig sem viðurkenndan á eigin verðugleikum og sem samþykktan þátttakanda í hópnum

Í inngildum (e. inclusive) hópum ríkir traust milli einstaklinga, vilji er til að skilja og virða sjónarhorn hvers annars, hver og einn einstaklingur getur haft einstaka rödd og nýtt eigin styrkleika í starfi.

Leiðtogi hópsins þarf að hafa hæfni til að ná saman og skapa sameiginlega sýn og hafa getu til að miðla sýninni til allra einstaklinga innan hópsins. Þessi nálgun er í raun nálgun þjónandi forystu þar sem að megineinkenni hugmyndafræðinnar er áhugi og traust, sjálfsþekking og auðmýkt, sameiginleg sýn og skýr markmið.

Höf. Þorkell Óskar Vignisson og Sigrún Gunnarsdóttir

The post Fjölbreytileiki, inngilding og þjónandi forysta appeared first on Þekkingarsetur um þjónandi forystu.

Þjónn verður leiðtogi – Grunnrit um þjónandi forystu
Árið 2018 kom út íslensk þýðing fyrsta rits Robert K. Greenleaf um þjónandi forystu: Þjónn verður leiðtogi.  Ritið var fyrst gefið út árið 1970 og hefur verið þýtt á fjölda tungumála.

Í ritinu fjallar Greenleaf um meginþætti hugmyndar sinnar um þjónandi forystu meðal annars um hlutverk leiðtogans að setja markmið sem vísar til þess að hafa skýran tilgang og að skapa stóran draum:

Orðið „markmið“ er hér notað í þeirri sérstöku merkingu að vísa til hins alltumlykjandi tilgangs, hins stóra draums, draumsýnarinnar, hinnar endanlegu fullkomnunar sem maður nálgast en nær aldrei í raun. Þetta er eitthvað sem eins og sakir standa er utan seilingar, eitthvað til að leitast við að ná, til að færast í áttina að eða verða. Þetta er þannig sett fram að það gefur ímyndunaraflinu lausan tauminn og skorar á fólk að vinna að einhverju sem það veit ekki enn hvernig það á fyllilega að framkvæma, einhverju sem það getur verið stolt af á meðan það færist í áttina að því.

Sérhvert afrek hefst á markmiði, en ekki bara einhverju markmiði og það er ekki bara einhver sem setur það fram. Sá sem setur markmiðið fram þarf að vekja traust, sérstaklega ef um er að ræða mikla áhættu eða draumkennt markmið, því að þeir sem fylgja eru beðnir að sættast á áhættuna með leiðtoganum. Leiðtogi vekur ekki traust nema maður hafi trú á gildum hans og hæfni (þar á meðal dómgreind) og nema hann hafi nærandi anda (enþeos*) sem mun styðja þróttmikla eftirsókn eftir markmiði.

Fátt gerist án draums. Og til að eitthvað stórt geti gerst, þarf stór draumur að vera til staðar. Á bak við sérhvert mikið afrek er einhver sem dreymir stóra drauma. Til að gera drauminn að veruleika þarf mun meira en þann sem dreymir en draumurinn þarf fyrst að vera til staðar.

Robert K. Greenleaf (2018): Þjónn verður leiðtogi, bls. 28

*Forngríska orðið enþeos merkir að vera uppfullur af guðlegum anda.

Þjónn verður leiðtogi (þýð. Róbert Jack) er til sölu í bókaverslunum og í vefverslun Iðnú.

The post Þjónn verður leiðtogi – Grunnrit um þjónandi forystu appeared first on Þekkingarsetur um þjónandi forystu.

Aðalfundur fimmtudaginn 25/2 kl. 16:30, netfundur
Minnt er á aðalfund Þekkingarseturs um þjónandi forystu haldinn á vefnum fimmtudaginn 25. febrúar nk. kl. 16:30.

Samanber aðalfundarboð í fréttabréfi sent 8. febrúar sl.

Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf.

Fundurinn er opinn öllum áhugasömum sem eru vinsamlega beðnir um að senda skilaboð til thjonandiforysta hja thjonandiforysta.is og slóð á fundinn verður send til baka.

Fréttabréf Þekkingarseturs um þjónandi forystu 8. febrúar 2021

The post Aðalfundur fimmtudaginn 25/2 kl. 16:30, netfundur appeared first on Þekkingarsetur um þjónandi forystu.

Að sýna ákveðna umhyggju og aga í verki. Helgi Hrafn Halldórsson um meistaranámið í þjónandi forystu
Helgi Hrafn Halldórsson er með BSc í tölvunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 2006 og byrjaði í meistaranámi í þjónandi forystu haustið 2019. Hann valdi námið til að efla sig sem leiðtoga og finnst þjónandi forysta eiga vel við starfsumhverfi hans sem stjórnandi og ráðgjafi í viðskiptagreind hjá fyrirtækinu Expectus. Vinur hans hafði mælt með náminu á Bifröst og Helga fannst fjarnámið þar vera góður kostur. Þegar Helgi sá að boðið var upp á sérstaka námslínu um þjónandi forystu fannst honum það vera spennandi og skemmtilegt að tengja við hugtakið vegna reynslu sinnar sem stjórnandi og að starfa sem þjónn: ,,Á mínum yngri árum starfaði ég sem þjónn en í dag er ég stjórnandi. Þannig þetta var aldrei spurning” segir Helgi og brosir og finnst skemmtilegt að pæla í hvernig þessi tvö hugtök vinna saman ,,þjónn og leiðtogi”

Maður þarf að sýna ákveðna umhyggju og sýna aga í verki

Helgi
segir að námið á Bifröst hafi verið áhugavert og nýst vel: ,,Námið hefur nýst mér í leik og starfi. Þjónandi forysta leggur
áherslur á einlægan áhuga á öðrum og það getur maður heimfært í næstum hvaða
kringumstæður sem er. Ég hef notað margt af mínum lærdómi í hvaða hlutverki sem
er, faðir, stjórnandi, eða ráðgjafi. Til að mynda með opnum samskiptum, virkri
hlustun og ástríkum aga. Sérstaklega segir Helgi áhugavert að vinna með samspil
þjónustu og forystu sem hefur verið líkt við ástríkan aga þar sem teflt er
saman mildi og festu, sveigjanleika og ákveðni: ,,Það sem mér hefur fundist
skemmtilegast í náminu um þjónandi forystu er samspilið sem myndast með
ástríkum aga. Maður þarf að sýna ákveðna umhyggju til fólksins sem maður er í
kringum. Hvort heldur sem það er fjölskylda, samstarfsfólk eða viðskiptavinir.
Maður þarf að vera þessi opna týpa og stuðla að opnum samskiptum. En að sama
skapi standa fastur á sínu og sýna aga í verki sem einstaklingur í forystu og
sýna umhyggju fyrir fólkinu sem í kringum mann.”

Það hefur líka verið áhugavert að lesa um árangur þjónandi forystu

Árangur
þjónandi forystu hefur líka vakið athygli Helga og hversu vel samspil umhyggju
og ábyrgðarskyldu hentar til að mæta þörfum mismunandi hópa sem eru á vinnumarkaði
til dæmis þekkingarstarfsmanna og nýrrar kynslóðar: ,,Það hefur líka verið
áhugavert að lesa um árangur þjónandi forystu innan þekkingarstarfa og
mismunandi kynslóða. Þá sérstaklega þegar kemur að tilgangi, hollustu og
vellíðan í starfi innan upplýsingatækni og hjá þúsaldarkynslóðinni. Nokkuð sem
væri áhugavert að heimfæra á íslenskar aðstæður og skoða þá í leiðinni samband
ábyrgðaskyldu og sjálfstæði við þjónandi forystu.”

Fjarnámið hentar mér alveg fullkomlega

Helgi er fjölskyldumaður og segir að fjarnámið á Bifröst henti mjög vel fyrir þá sem eru í starfi og líka með fjölskyldu: ,,Fjarnámið hentar mér alveg fullkomlega. Sjálfur er ég í fullu starfi og með fjögurra manna fjölskyldu þannig það kom aldrei til greina að setjast á skóla bekk í margar klukkustundir í viku. Það að maður getur sinnt náminu á þeim tíma sem hentar manni er alveg fullkomið.”

Viðtal við Helga Hrafn Halldórsson um meistaranám í þjónandi forystu við Háskólann á Bifröst

Háskólinn á Bifröst býður upp meistaranám í Forystu og stjórnun með áherslu á þjónandi forystu. Námið er tveggja ár nám og getur lokið með MS gráðu sem felur í sér meistararitgerð eða MLM gráðu þar sem tekin eru fleiri námskeið og ekki skrifuð lokaritgerð. Námið er skipulagt í samvinnu við Þekkingarsetur um þjónandi forystu. Umsjónarkennari er Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við skólann. Umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár er til 20. maí 2020. Nánari upplýsingar um námið og umsóknir eru hér.

The post Að sýna ákveðna umhyggju og aga í verki. Helgi Hrafn Halldórsson um meistaranámið í þjónandi forystu appeared first on Þekkingarsetur um þjónandi forystu.

,, Það er einstakt að geta tengt fræðin strax við vinnuna” Ingibjörg Ósk Erlendsdóttir um meistaranám í þjónandi forystu
Haustið 2019 hóf hópur nemenda meistaranám í þjónandi forystu við Háskólann á Bifröst. Ein í þessum hópi er Ingibjörg Ósk Erlendsdóttir sem hafði haft áhuga á þjónandi forystu í nokkur ár, fannst hugmyndin áhugaverð og lýsir aðdraganda þess að hún fór í námið: ,,Ég heyrði fyrst af þjónandi forystur þegar ég sat fyrirlestur hjá Sigrúnu Gunnarsdóttur árið 2014. Ég man hvað ég heillaðist af fræðunum, svo var það ekki fyr en 2019 sem ég ákvað að láta slag standa og sé ekki eftir því.“  Hér á eftir lýsir Ingibjörg sýn sinni á þjónandi forystu og reynslu sinni af náminu á Bifröst.

Fræði sem eiga svo svakalega vel við þúsaldarkynslóðina

Meistaranámið í þjónandi forystu felur í sér bæði fræðilega nálgun og hagnýta tengingu. Ingibjörg segir ánægjulegt að sjá hve margar rannsóknir sýna fram á árangur fyrirtækja af þjónandi forystu sem hefur mikil áhrif á starfsánægju. ekki síst hjá nýjum kynslóðum  ,,í raun hafa allar rannsóknir sýnt fram á aukna starfsánægju”. Þekkingu um þjónandi forystu hefur fleygt hratt fram undanfarin ár en hugmyndin á rætur í gömlum kenningum. Ingibjörg segir tengingu þjónandi forystu við nýjar kynslóðir mjög áhugaverða og að sjá: ,,hve gömul fræðin eru en eiga svo svakalega vel við þúsaldarkynslóðina.  Eftir að hafa sökkt mér í fræðin er þjónandi forysta klálega framtíðin.“ .

Þetta er mildi og festa, fín lína, en gríðarlega mikilvægt að ná listinni við að flétta þetta tvennt saman til að uppskera

Þegar Ingibjörg er beðin um að lýsa þjónandi forysta með sínum orðum segir hún: ,,þjónandi forysta snýst mikið um hlustun og áhuga, hvaða starfsmenn vilja ekki að þeim sé sýndur áhugi? En líka um hugrekki og ábyrgðina sem þjónandi leiðtogar verða að vera meðvitaðir um. Þetta er mildi og festa, fín lína, en gríðarlega mikilvægt að ná listinni við að flétta þetta tvennt saman til að uppskera.

Námið hefur gert mig víðsýnni, auðmýkri en jafnframt hugrakkari.“

Ingibjörg segir námið áhugavert, vera mjög hagnýtt og nýtast í starfi og líka fyrir hana sjálfa sem einstakling og verkefnin í náminu feli í sér að rýna bæði fræðin og sjálfa sig: ,,Það er einstakt að vera í þessu námi og jafnframt í vinnu og geta tengt fræðin strax við vinnuna, yfirfærslan verður svo sterk. Þjónandi forysta er virkilega spennandi fræði sem eru í raun einföld en list að fara með. Ég hef líka öðlast betri þekkingu á sjálfri mér, ég held meira að segja að ég sé orðin betri manneskja, móðir, maki og vinur. Að iðka ígrundun er svo gagnlegt, verða betri í dag en í gær. Læra af reynslunni, bregðast öðru vísi við erfiðum aðstæðum. Námið hefur gert mig víðsýnni, auðmýkri en jafnframt hugrakkari.“

Ingibjörg Ósk Erlendsdóttir starfsmaður hjá Icelandair og meistaranemi í þjónandi forystu við Háskólann á Bifröst

Meistaranám í Forystu og stjórnun með áherslu á þjónandi forystu.

Háskólinn á Bifröst býður upp meistaranám í Forystu og stjórnun með áherslu á þjónandi forystu. Námið er tveggja ár nám og getur lokið með MS gráðu sem felur í sér meistararitgerð eða MLM gráðu þar sem tekin eru fleiri námskeið og ekki skrifuð lokaritgerð. Námið er skipulagt í samvinnu við Þekkingarsetur um þjónandi forystu. Umsjónarkennari er Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við skólann. Umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár er til 20. maí 2020. Nánari upplýsingar um námið og umsóknir eru hér.

The post ,, Það er einstakt að geta tengt fræðin strax við vinnuna”  Ingibjörg Ósk Erlendsdóttir um meistaranám í þjónandi forystu appeared first on Þekkingarsetur um þjónandi forystu.

,,Áhugaverð fræði sem hafa mikla tengingu við nútímann“ –Meistaranámið í þjónandi forystu
Síðastliðið haust varð að veruleika langþráður draumur um þjónandi forystu um sérhæft meistaranám í þjónandi forystu við Háskólann á Bifröst í samvinnu við Þekkingarsetur um þjónandi foyrstu. Þjónandi forysta hefur verið kennd við skólann frá árinu 2013 og nú þegar fyrsti hópurinn er að ljúka fyrri hluta námsins er fróðlegt að heyra af reynslu nemenda.

Ég var fljótur að ákveða þá að vilja vera partur af þessum hópi.

Bragi Jónsson er í fyrsta hópnum sem hóf nám síðastliðið haust. Bragi er rekstrarstjóri Leigumarkaðar BYKO og hefur starfað hjá því fyrirtæki í 17 ár bæði samhliða námi og í fullu starfi á ýmsum sviðum fyrirtækisins. ,,Ástæða þess að ég skráði mig í nám á Bifröst er sú að ég vildi styrkja mig í mínu hlutverki sem stjórnandi og leist vel á geta stundað námið í fjarnámi samhliða vinnu. Í fyrstu skráði ég enga áherslu en las um þessa nýju áherslulínu sem í boði var og ætlaði að ákveða mig um leið og ég vissi meira um hvað þetta væri. Á nýnemadeginum hittist hópurinn sem var að hefja nám með áherslu á þjónandi forystu og ég var fljótur að ákveða þá að vilja vera partur af þessum hópi. Námið hefur ekki valdið vonbrigðum, þvert á móti hefur þetta verið einstaklega skemmtilegt og gagnlegt nám og ég hlakka til að takast á við síðari hluta námsins.

Vinnuhelgar eru frábærar og skapast oft mjög skemmtilegar umræður

Bragi hefur verið ánægður með námið, nemendahópurinn er mjög samheldinn og nemendur koma úr ólíkum áttum með mismunandi reynslu og þekkingu.  Bragi segir námsefnið áhugavert og fyrirkomulagið gott. ,,Verkefnin sem lögð eru fyrir eru áhugaverð og reyna bæði á þekkingu nemenda á fræðunum og einnig er sífellt verið að reyna á nemendur við að tengja við raunveruleikann og er jafnvægið mjög gott. Sigrún Gunnarsdóttir stýrir náminu með miklum eldmóð og áhuga og smitar mjög auðveldlega út frá sér áhuga sínum á viðfangsefninu. Vinnuhelgar eru frábærar þar sem hópurinn hittist og skapast oft mjög skemmtilegar umræður um námsefnið og tengt er við málefni líðandi stundar, einnig koma skemmtilegir gestafyrirlesarar eins og t.d. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sem var með frábært erindi í febrúar síðastliðinn.“

Skapa þessa sameiginlegu framtíðarsýn þar sem einhver heillandi tilgangur sameinar liðsheildina í að ná settu marki

Bragi
segir að fyrir hann sem stjórnanda sé margt mjög áhugavert í náminu um þjónandi
forystu. ,,Fyrir mig sem stjórnanda er það sérstaklega gaman að fá að prufa mig
áfram með ýmsar áherslur fræðanna í mínu starfi og sjá hvað virkar og hvað þarf
að hugsa betur. Þessi skýra sýn á starfsfólkið framar öllu og þessi skylda
leiðtogans að sjá til framtíðar og skapa þessa sameiginlegu framtíðarsýn þar
sem einhver heillandi tilgangur sameinar liðsheildina í að ná settu marki.

Með því að hlusta er maður að sýna fólki virðingu og því finnst það skipta máli.

Með náminu á Bifröst hefur Bragi fengið enn betri skilning á því hve góð samskipi skapa mikinn árangur og orku. ,,Krafturinn sem felst í því að hlusta á fólk, það að gefa fólki 100% athygli án þess að leyfa einhverju að trufla það er svo rosalega kraftmikið og maður finnur hvað fólk kann að meta það þegar maður hlustar. Það þarf ekki alltaf að vera samþykkur því sem fólk er að segja við mann en með því að hlusta er maður að sýna fólki virðingu og því finnst það skipta máli.

Kafað er djúpt í fræðin og á sama tíma er sífellt verið að tengja við raunveruleikann og þess gætt að finna hagnýtinguna í bland við fræðin

Bragi segir að meistarnámið í þjónandi forystu sé áhugavert og gagnlegt fyrir daglegt líf bæði í vinnunni og heima. Það sé ánægjulegt að kafa ofan í rannsóknir sem sýna að með auknum áherslum þjónandi forystu í stjórnun fylgir meiri starfsánægja og bætt rekstrarafkoma. ,,Umfram allt eru þetta áhugaverð fræði sem hafa mikla tengingu við nútímann. Í náminu felst að til viðbótar við hefðbundna skylduáfanga eru teknir þrír áfangar í þjónandi forystu þar sem kafað er djúpt í fræðin og á sama tíma er sífellt verið að tengja við raunveruleikann og þess gætt að finna hagnýtinguna í bland við fræðin. Þjónandi forysta er heildstæð nálgun á stjórnun sem tvinnar saman á skemmtilegan hátt hin ólíku orð þjónn og forysta. Byggt er á þriggja þátta líkani Sigrúnar Gunnarsdóttur á hugmyndum Robert K. Greenleaf þar sem þjónustuhlutinn snýr að sjálfsþekkingu og einlægum áhuga á öðrum annars vegar, síðan er forystuhlutinn sem snýr að framtíðarsýninni og tilgangnum hins vegar.

Mun vonandi rannsaka eitthvað áhugavert viðfangsefni með tengingu við íslenskt atvinnulíf﻿

Um þessar mundir er Bragi að hefja undirbúning seinni hluta námsins og undirbýr að skrifa meistararitgerð: ,,Sjálfur hafði ég hugsað að taka frekar MLM gráðu (semsagt að skrifa ekki ritgerð) en ég ákvað núna á vormánuðum þegar síðasti áfanginn um þjónandi forystu var búinn að það væri synd að fá ekki að stúdera þessi fræði áfram og hef því ákveðið að skrifa ritgerð. Ég horfi því björtum augum til næsta vetrar þar sem ég mun vonandi rannsaka eitthvað áhugavert viðfangsefni tengt þjónandi forystu með tengingu við íslenskt atvinnulífi.”

Viðtal við Braga Jónsson um meistaranámið í þjónandi forystu

Meistaranám við Háskólann á Bifröst

Háskólinn á Bifröst býður upp á fjölbreytt nám á ýmsum sviðum og þar á meðal er hægt að taka meistarapróf í forystu og stjórnun. Mögulegt er að velja að taka MS gráðu sem skiptist í 2/3 námskeið og svo 1/3 ritgerð og einnig er boðið upp á MLM gráðu sem er þá alfarið námskeið og engin ritgerð. Haustið 2019 var í fyrsta skipti boðið upp á að taka þessa meistaragráðu með áherslu á þjónandi forystu. Námið er skipulagt í samvinnu við Þekkingarsetur um þjónandi forystu.   Umsjónarkennari er Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við skólann. Umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár er til 20. maí 2020. Nánari upplýsingar um námið og umsóknir eru hér.

The post ,,Áhugaverð fræði sem hafa mikla tengingu við nútímann“ –Meistaranámið í  þjónandi forystu appeared first on Þekkingarsetur um þjónandi forystu.

Almannaþjónar og almannaleiðtogar
Það er mikil gæfa fyrir samfélagið allt að njóta góðs af styrk og öryggi þjónandi leiðtoga á vettvangi almannavarna og lýðheilsu. Hver sem horfir á og hlustar sannfærist um öryggi þriggja manna almannavarnateymisins hér á landi sem daglega birtist á sjónvarpsskjám landsmanna. Ef rýnt er í áherslur þeirra, aðferðir og ásetning blasa við einkenni þjónandi leiðtoga (e. servant leadership).

Þjónandi leiðtogi hefur einlægan áhuga á hagsmunum annarra og leitar jafnframt hugmynda annarra til að þróa farsælar hugmyndir og til að læra í gegnum viðhorf, reynslu og sjónarmið annarra. Þessir kostir þjónandi leiðtoga eru augljósir hjá þriggja manna teyminu, þau hlusta af alúð á spurningar fréttamanna, útskýra yfirvegað flóknar og viðkvæmar staðreyndir. Þau haga orðum sínum um íbúa landsins af varfærni og ekki síður þegar þau tala um börnin, eldri borgara, sjúklinga, gesti okkar hér á landi, erlenda leiðtoga og um hvern þann sem um er rætt. Orð þeirra, líkamsmál og öll samskiptin þeirra á milli eru uppörfandi fyrir þá sem hlusta og umfram allt skapa þau traust.

Þjónandi leiðtogi ræktar sjálfsöryggi með vitund og sjálfsþekkingu og þetta sjálfsöryggi birtist með auðmýkt, yfirvegun og öryggi í framkomu. Af því sem sjá má og heyra virðist hvert og eitt þeirra þriggja í teyminu hafa lagt sérstaka alúð við þetta höfuðeinkenni góðra leiðtoga. Yfirvegun þeirra og vilji til að taka á móti spurningum og gagnrýni endurspeglar á mjög skýran hátt hve vel þau hvíla í eigin skinni sem gerir þeim kleift að tala og koma fram af auðmýkt. Auðmýktin endurspeglast í öllu fasi, líkamsmáli og beitingu raddarinnar sem sannfærir áhorfandann um öryggi og festu leiðtoganna.

Að sjá til framtíðar er þriðja megineinkenni þjónandi leiðtoga og tengist skýrri sýn á tilgang og samfélagslega ábyrgð. Að sjá til framtíðar snýst um  að þekkja fortíð, gera sér grein fyrir nútíð og að nýta þá þekkingu til að spá fyrir um framtíðina. Þjónandi leiðtogi hefur hæfileika til að greina upplýsingar og mynstur sem hjálpar honum að sjá til framtíðar og skapar honum forskot til forystu. Þennan hæfileika leiðtoganna þriggja njótum við sannarlega góðs af hér á landi og dáumst að dugnaði og þrautseigju þeirra við að leita, greina og miðla nýjum upplýsingum og að nýta þær til að setja fram leiðbeiningar með hag heildarinnar og sjálfsfélagslega ábyrgð að leiðarljósi. Tilgangur leiðtoganna er augljós og birtist í áherslum þeirra á öryggi, heilsu og hamingju íbúanna sem enn frekar eflir traust og von.

Mildi og festa. Þjónandi leiðtogar hafa sérstaka hæfileika til að mæta mikilvægum þörfum annarra með því að vera þjónar fyrst og taka síðan ákvörðun um að vera leiðtogar. Þjónandi leiðtogar hafa hæfileika og færni til að skapa jafnvægi þjónustu og forystu með mildi og festu og aga sem mætti kalla ástríkan aga. Þjónandi leiðtogar mæta þörfum annarra af hlýju um leið og hver og einn er kallaður til ábyrgðar þar sem hagsmunir heildarinnar eru leiðarljósið og ábyrgarskylda og frelsi hvers og eins eru grundvallaratriði.

Byggt á grein um þriggja þátta líkan um þjónandi forystu, sjá Sigrún Gunnarsdóttir og Birna Gerður Jónsdóttir (2013)

Leiðtogar almannavarna og lýðheilsu. Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason og Alma Möller. Mynd: mbl.is

The post Almannaþjónar og almannaleiðtogar appeared first on Þekkingarsetur um þjónandi forystu.

Þjónandi forysta: Að styðja aðra til að blómstra og að ná árangri.
Þjónandi forysta snýst um valdeflingu og birtist í því að við:

1) höfum einlægan áhuga á öðrum

2) leggjum okkur fram við að læra og efla sjálfsþekkingu og sjálfsöryggi og

3) höfum skýra sýn á tilgang og stefnuna framundan.

Árangurinn er metinn í ljósi þess hversu vel tekst að styðja aðra til að blómstra, verða sjálfstæðir, frjálsir og að ná árangri. Lykilhugtakið er vöxtur sem verður til í samspili þjónustu og forystu og mikilvægasta aðferð þjónandi forystu er að mæta mikilvægum þörfum með einbeittri hlustun sem skapar traust, tilfinningu fyrir frelsi og vellíðan. Hlustun felur í sér valdeflingu.

Þrjár
víddir valdeflingar

Valdefling er samofin mörgum þáttum í starfi og birtist með því að viðkomandi upplifir sig hafa rödd og áhrif á eigin aðstæður. Líta má á þrjá víddir valdeflingar í þessu sambandi, þ.e. valdefling sem tengist:

1) persónulegum þáttum

2) skipulagi og umhverfi og

3) aðstæðum í samfélaginu.

Mikilvægasta aðferðin til valdeflingar er stuðningur, aðgangur að upplýsingum, uppbyggileg samskipti og viðurkenning á frelsi og hæfileikum viðkomandi. Valdefling og tilfinning fyrir að hafa rödd tengist þrautseigju, vellíðan, lífsgæðum og góðri heilsu. Valdefling felst í trú á eigin getu, færni í lausnaleit, þjálfun í að nota eigin rödd og færni til að nýta tækifæri til að læra og vaxa.

Mildi og festa

Auðmýkt er mikilvægt verkfæri til að skapa valdeflingu og leiðtogi nýtir auðmýkt til að beina athygli að öðrum og tækifærum þeirra til að vaxa og blómstra. Þjónandi leiðtogar eru þekktir fyrir að vera mildir á manninn en um leið að gefa engan afslátt af ábyrgðarskyldu hvers og eins. Þjónandi leiðtogar flétta saman þjónustu og forystu, umhyggju og aga, stefnufestu og sveigjanleika. Grundvallaratriðið er að efla samstarfsfólkið og hvetja til góðra verka þar sem leiðtoginn er fremstur meðal jafningja. Rannsóknir sýna að með þjónandi forystu eru minni líkur á einkennum kulnunar og meiri líkur á starfsánægju og tengslin eru sterkust við valdeflingu í gegnum áherslur og aðferðir næsta yfirmanns.

Hlutverk
næsta yfirmanns og ábyrgð starfsmanna

Valdefling er samspil persónulegra þátta og
þátta í starfsumhverfinu. Ábyrgð hvers og eins starfsmanns er að nýta tækifæri
til að hafa áhrif á eigin aðstæður. Hlutverk samstarfsfólks og einkum næsta
yfirmanns er að veita starfsfólki stuðning í þessum efnum. Þjónandi forysta
byggir á gagnkvæmum stuðningi og sameiginlegri ábyrgðarskyldu þar sem hver og
einn hefur tækifæri til að taka af skarið, að veita forystu. Áherslur þjónandi
forystu tengjast vellíðan starfsmanna og fela í sér valdeflingu til hagsbóta
fyrir skjólstæðinga og starfsmenn sjálfa. Reynslan sýnir að árangursríkasta
aðferðin til að innleiða þjónandi forystu á vinnustöðum er rýni í fræðin og
samtal um hagnýtinguna á hverjum stað.

Valdefling
er smitandi

Tækifæri til að hafa áhrif felur í sér frelsi og frelsi fylgir ábyrgð. Það er ábyrgð hvers og eins að nýta frelsi og tækifærin sem þar eru til áhrifa. Það er líka ábyrgð hvers og eins að vera öðrum til stuðnings, lyfta öðrum og hjálpa öðrum að hafa rödd. Einstaklingur sem hefur trú á eigin getu er líklegri til að nýta tækifæri til áhrifa og líklegri til að gefa öðrum tækifæri til áhrifa. Valdefling er nefnilega smitandi. Með því að veita öðrum athygli og stuðning verða til nýjar hugmyndir og nýjar lausnir fyrir sjálf okkur og aðra. Þannig skapast valdefling einstaklinga og hópa.

Byggt á grein höfundar í 100 ára afmælisriti
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, 2019

The post Þjónandi forysta: Að styðja aðra til að blómstra og að ná árangri. appeared first on Þekkingarsetur um þjónandi forystu.