font.is

PostScript letur ekki í boði lengur
Þriðja málið í flokknum um breytingar sem eru á skella á okkur hönnuði og umbrotsfólk um þessar mundir. Það snýst um að svokallað PostScript letur oft callað Type 1 letur, er ekki lengur stutt í Adobe forritunum. Það eru að minnsta kosti þrjú ár síðan þetta var tilkynnt en margir hafa ekki haft hugmynd um þetta og nú er letrið sem hefur verið notað árum saman skyndilega orðið úrelt. Eða er það?

Ástæðan fyrir því að þetta snið af letri er látið gossa er fyrst og fremst af því að það barn síns tíma og úrelt. Í hverju letri er bara rými fyrir 256 leturtákn. Því er skipt í skjáletur og prentletur og það á til að skemmast ef það er sent milli tölva eða í tölvupósti. Þetta er það helsta.

Open Type sniðið sem er augljós arftaki tekur yfir 65 þúsund leturtákn er í einum hluta og er ekki eins viðkvæmt í flutningi. Og gengur að auki bæði á windows og mac.

En gamla letrið mitt? Jú, það eru nokkrar færar og löglegar leiðir.

Það er hægt að nýta sér Adobe letrin (um 18.000 letur) ef maður er með samning um Crative Cloud og/eða Google letur sem er ókeypis.

En það er fullt af letri sem maður hefur keypt af öðrum gegnum árin og þetta fyrrnefnda dugir ekki til þess að leysa það mál. Leiðin til þess að bjarga því letri er að kaupa forritið TransType 4 af FontLab og snúa letrinu út PostScript yfir í Open Type. Forritið kostar nálægt 100 dollurum en það kostar miklu meira að kaupa aftur mikið af úreltu letri. Hviss bang!

Eða að fá einhvern til þess að gera þetta fyrir sig því þetta er vinna eins og svo margt.

Kaffi

FontExplorer X er hætt og ekki lengur stutt
Það eru nokkur atriði sem eru að breytast um þessar mundir í starfsumhverfi hönnuða og umbrotsfólks. Þessar breytingar hafa mismikil áhrif á fólk eftir því hvernig verkefnum það er að sinna. Sumt sem ég ætla að nefna hefur verið boðað með mjög löngum fyrirvara en kemur þeim á óvart sem ekki hafa fylgst með eða eru einfaldlega orðnir ónæmir fyrir marg endurteknum tilkynningum.

Ég ætla að skipta þessari umfjöllun í aðskilda kafla sem munu birtast hér og í hverjum þeirra segi ég frá því sem mér líst best á að gera til þess að leysa málið – jafnvel með skítamixi, ef ekki býðst annað.

Fyrsta sem ég nefni er Hunspell fyrir þá sem eru með Apple-tölvur með sílikon örgjörva, M1 og M2. Þetta mál er leyst í bili með hjáleið sem má lesa um í greinum hér á undan.

Annað er að FontExplorer X hefur verið lagður af og því enginn stuðningur við það forrit lengur. Virkar fyrir flesta eitthvað áfram en margir hafa fundið forritið vera að molna niður í nokkurn tíma. Hvað er hægt að nota í staðinn.

Þriðja er að PostScript letur, Type1, virkar ekki lengur í Adobe forritum, InDesign og þeim. Aðvörun um þetta er búin að loða við líklega í þrjú ár eða meira. Margir eru með letur af þessari tegund og mörg af þeim eru ekki í Adobe safninu eða Google. Hvað gera Danir þá?

Fjórða málið er að núna eru aðeins þrjár litabækur (Color Books) í Adobe forritum í stað tíu áður. Það versta er að Solid Color Coated og Uncoated eru dottnir út, sem vísa í sérliti sem prentaðir eru með Pantone litum. Hvað er hægt að gera í því, án þess að stíga á tær leyfishafa?

Mál tvö: FontExplorer X.

FontBase – RightFont – Typeface

Sumir muna eftir því að Linotype FontExplorer var í upphafi ókeypis forrit. Sem slíkt jafnaðist það á eða var betra en margt annað sem var á markaðnum svo sem Suitcase. Forritið þróaðist og varð stöðugra og fékk síðan verðmiða á sig. Aðeins hátt fannst mér alltaf fyrir hvern nýjan notanda en uppfærslur voru á hálfvirði. Ég hef alla tíð hælt þessu forriti og þeim möguleikum sem það bauð upp á. Sumt er ekki jafnað í neinu öðru forriti í þessum flokki svo ég viti. Til dæmis að geta valið skjal, látið FontExplorer skanna skjalið og segja til hvaða letur er í skjalinu og búa til sett með því letri.

Hvernig sem á því stendur sér Monotype (sem á núna Linotype) sér ekki fært að halda áfram að þróa þetta forrit, en hefur komið með aðra lausn sem ég prófaði um hríð. Ég ætla ekki að fjalla um þá lausn hér, en í stuttu máli líkaði mér ekki og fannst of dýrt.

Og hefst þá leitin að einhverju öðru til þess að taka við. Það ber að nefna fyrst að með Apple-tölvum kemur forritið Font Book sem gegnir þessu hlutverki en það er frekar frumstætt í meðförum og alls ekki fyrir þá sem þurfa að nota mikinn fjölda leturgerða.

Á vefnum the Sweet bits er ágætis grein þar sem er haldið utan um valkosti fyrir þá sem eru á Apple-tölvum. Listinn er ekki tæmandi en mér skilst að röðin ráðist af því hvað höfundinum þykir vænlegast.

Typeface 3

RightFont

FontBase

FontAgent

Connect Fonts

Webfont

flipping typical

Forritin eru ýmist alveg ókeypis, ókeypis reynslutími eða alltaf ókeypis en með meiri möguleikum ef farið er í áskrift.

Ég hef verið að prófa þessi þrjú efstu og myndi setja FontBase í efsta sætið, RightFont í annað og Typeface 3 í þriðja.

FontBase

RightFont

Typeface 3

Eins myndi ég kaupa áskrift að því sem ég veldi. Þessi þrjú eru með ágætis tengsl við Adobe forritin sem flestir eru að nota. Þetta er nauðsynlegt ef notuð eru önnur letur en þau sem Adobe býður upp á (18.000 eða svo).

Prufurnar halda áfram hjá greinarhöfundinum á The Sweet Bits og ég held áfram að leita þótt ég noti FontBase sem stendur. Svo kemur að því að ég reyni að skrifa um reynsluna því það eru margir sem vilja einhverja umsögn.

Kaffibolla?

Hunspell hjáleið fyrir Mac sem eru með Apple örgjörva (M1/M2)
Loksins komin margumbeðin hjáleið fyrir þá sem eru að nota nýlega makka, það er að segja Apple tölvur með Apple-Sílikon örgjörva, kallaða M1 og M2.

Síðustu tvö árin hafa þeir sem eru með þessa gerð tölva þurft að ræsa þær í svökölluðum Rosetta–ham til þess að geta notað íslenskar Hunspell–orðskiptingar. Þetta hefur þýtt mun hægari ræsingu á InDesign forritinu og hægari virkni almennt í forritinu. Mjög svekkjandi.

Þessi hjáleið sem ég ber að bjóða upp á er stillt eins og gert hefur verið með aðrar útgáfur. Eins gæsalappir og það allt —að öðru leyti en því að valið er að tungumálið er stillt á Eistland (Estonia) inni í /InDesign/Preferences/Dictionaries og líka í Character panelnum.

Eistneska er eitt af þeim málum sem koma með hverri útgáfu af InDesign og ég nýti mér það. Teysti á að Ísland verði í góðum málum áfram hjá Eistum, enda er þetta gert í nauðvörn.

Því miður gengur ekki að hafa íslensku stillinguna í gangi samhliða. Því tekur Hjáleiðin íslenska Hunspell út sambandi. Enda þarf líklega enginn að hafa hana líka bara til þess að þurfa að virkja hana með Rosetta.

Viss ókostur er að eistnesk orðabók og orðskipting er með þessu komin úr sambandi. Það er alveg möguleiki að einhver þurfi að nota eistnesku (hef sjálfur lent í því nokkrum sinnum á síðustu mánuðum). Málið er leyst með því að fjarlægja InDesign forritið (en geyma Preferences) og svo er InDesign hlaðið inn aftur með Creative Cloud forritinu. Eftir að verkefninu er lokið er Hunspell hlaðið inn aftur. Geymið innsetningarforritið á góðum stað. Enda þarf að nota það stundum eftir að InDesign hefur verið uppfært.

Nú verður sem sagt í boði að fá sér annað hvort íslenskt Hunspell fyrir Intel-örgjörva eða Silicon örgjörva.
Þeir sem þegar hafa keypt Hunspell fyrir útgáfu 2023 af InDesign af því annað var ekki í boði, geta fengið Hjáleiðina hjá mér með því að melda sig með tölvupósti til siggiarmanns@font.is

Þetta tilboð stendur út janúar 2023.

Hunspell stillingar á Mac vegna Apple örgjörva (M1)
Almennar stillingar fyrir Hunspell eru á annarri síðu, https://font.is/hunspell-stillingar-hunspell-is_is-settings-indesign/ , en þar er ekki fjallað um þau áhrif sem ný gerð af örgjörvum í mökkunum hefur.

Margir eru að fá sér nýja makka og þeir eru flestir eru með sílikon örgjörvanum sem Apple framleiðir sjálft. Adobe forritin eru greinilega ekki alveg tilbúin í slaginn. Þetta bitnar mest á viðbótum sem er verið að nota með forritunum.

Til þess að komast í kringum vandann þarf að ræsa InDesign í Rosetta. Þetta er  virkjað með því að velja InDesign forritið þar sem það er inni í Applications. Þá er smellt á slaufa+I (Get Info). Í Get Info glugganum er hakað í reitinn: Open in Rosetta. Eftir það virkar Hunspell orðskiptinginn en InDesign gengur ekki eins hratt og það myndi gera ef það væri bara ræst án Rosetta.

Vonandi verður fundin lausn á þessu fyrr en síðar. Ég er engu að síður að vinna að lausn framhjá þessum vanda –án þess að þurfa að keyra upp á Rosetta. Meira um það síðar.

The Anatomy of Typography now available for your computer
I just finished a remake and a redesign of The Anatomy of Typography wallpaper for computer screens I first made in 2008. Originally I made it in English using the terms I had available at the time. In this session I have added a number for terms I have come to know. I have also made a version which is in Icelandic and English and on top of that I will soon ship a German and English version.

Time will tell if I make these wallpapers for more languages. This is no easy task. This is why I have to charge for it instead of giving it for free.

I am offering these wallpapers in four different sizes, S, M, L and XL. The bigger ones will fit smaller screens but smaller wallpapers will not look good on bigger screens.

Each wallpaper will be sold at and introductory prize to the end of October 2021, €8. €15 after that. The wallpaters are available here.

This is actually the Icelandic/English version but shows approximately how it look on the desktop of my mac.

Líffærafræði leturs
Nú bjóða Lausnir upp á skjámyndir fyrir tölvuskjái (wallpaper) á þremur tungumálum, íslensku með enskum undirtitlum, ensku eingöngu og þýsku með enskum undirtitlum. Skjámyndirnar verða á hálfvirði út október, eða á €8 sem hækkar í €15 í nóvember.

Fjórar stærðir eru af þessu sem henta vel fyrir hinar ýmsu skjástærðir. Það er, eftir því sem stærðin er nær skjástærðinni því skýrari er myndin. Fyrir þá sem eru ekkert fyrir pixeltölur setti ég S, M, L og XL sem flestir skilja.

S 1920 x 1200 sem sem hentar á fartölvur.
M 2560 x 1600 er líka fyrir nýrri fartölvur, Retina.
L 3840 x 2160 myndi vera kallað 4K.
XL 5120 x 2880 þessi stærð passar flott á 5K skjái eins og eru til dæmis á nýrri iMac vélum.

Fyrsta útgáfan af þessari líffærafræði leturs sem ég setti saman árið 2008 var byggð á þeim upplýsingum sem ég hafði á þeim tíma og var hugmyndin að hafa þessi hugtök fyrir augunum á þægilegum stað. Ég leyfði þessu að liggja hér á font.is síðan á árinu 2009 og fjölda eintaka hefur hlaðið niður. Ég sá svo smátt og smátt að þetta þyldi alveg smá uppfærslu og nú loksins birtist þessi útgáfa. Þetta hefur verið mikil vinna og mikil uppfærsla. Ekki má gleyma að í þýsku útgáfunni fékk ég aðstoð þýskrar konu, Monika Gause, sem þekkir vel inn á þessi mál. Hún er reyndar einna þekktust fyrir aðkomu sína að Adobe Illustrator í Þýskalandi, hefur skrifað bækur meðan annars um Illustrator og veit flest allt um það forrit.

Þetta lítur svona út á tölvunni

Þessi nýja útgáfa er mikið uppfærð þótt vissulega sé ekki alveg allt með. Það kom í ljós að íslensk heiti og hugtök voru ekki til fyrir einstaka hluti sem eru til í sumum öðrum tungumálum, sérstaklega í ensku. Meira að segja í þýsku reyndist vanta einstaka hugtök sem eru til í ensku. Síður í hina áttina.

Í rannsóknarleitinni að íslenskum heitum urðu á vegi mínum meðal annars lokaverkefni nemenda í Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, ýmis önnur skrif, bæklingar og kennsluefni um letur. Það sem mér fannst besta og skemmtilegasta samantektin var í Mænu frá árinu 2012, riti sem hönnunardeild Listaháskólans gefur út árlega. Samantektin um líffæri leturs unnin undir handleiðslu Dóru Ísleifsdóttur er gerð af Magnúsi Elvari Jónssyni og Jóhanni Geir Úlfarssyni. Mjög vel gert og þó nokkuð af íslenskum hugtökum sem ég hef ekki séð annars staðar. Kannski heimasmíðaðar þýðingar, sem veitir svo sem ekki af í íslenskudeildinni. Ég fékk að láni nokkur heiti úr þessu safni. Mér líkaði ekki alveg allt, eins og gengur. Svo voru líka nokkrar smávægilegar villur svo sem að „il“ sem ég tók upp, væri þýðing á „vortex“. Vortex á að vera Vertex, en þessi villa verður oft hjá enskumælandi. Il er hins vegar ágætt, en „hæll“ hefði líklega verið nær sanni.

Á nokkrum stöðum breytti ég heiti, gerði nýjar þýðingar og alla vega á einum stað smíðaði ég til nýtt íslenskt orð (að því er ég best get séð). Það finnst ekki í íslenskum orðabókum sem skoðaði á netinu. Það er orðið „samsteflingur“ sem þýðing á Ligature. Samsteflingur er í stíl við orðið hásteflingur sem er heiti fyrir Small Caps.

Það er mjög huggulegt að hafa þessa skjámynd finnst mér og geta kíkt á öll þessi hugtök. Hentugt að muna eftir Alt+Slaufa+H á makka til þess að fela önnur forrit meðan maður skoðar.

Gjörið svo vel á líkja á þessi kostakjör í LAUSNIR út október.

Hunspell stillingar // Hunspell is_IS settings InDesign
Eins og gefur að skilja eru margir sem þurfa smá aðstoð við að setja upp Hunspell orðskiptingar fyrir InDesign á tölvuna sína. Það eru margar og misjafnar ástæður fyrir því. Hérna er vonandi gagnlegar leiðbeiningar sem gætu nýst þeim við að eyða óvissumálum. Að hluta til er grunnurinn að þessum pistli byggður á spurningunum sem ég hef fengið í þessu sambandi. Þess vegna er þetta svona ítarlegt.

Fyrsta atriðið sem mér finnst ég þurfa að nefna er að þeir sem kaupa Hunspell innsetningarforritið eru eingöngu að kaupa innsetningarforritið sjálft. Eða eins og það er kallað, leyfi til þess að nota það. Innihaldið, Hunspell orðskiptingin er ókeypis. Ég veit að ég hef nefnt það mörgum sinnum, en það er full ástæða til þess að minna á það að ég er ekki að selja það sem er ókeypis fyrir. Hver sem er getur nálgast Hunspell innihaldið og sett það handvirkt upp á tölvu. Það er bara smá vesen. Og virkar því miður ekki.

Spurning: Hvernig fæ ég Hunspell innsetningarforritið sem ég var að kaupa?
Svar: Það á að koma hlekkur með kvittuninni frá Shopify. Ef hann kemur ekki og er ekki í ruslinu hafið þá samband við mig (sigurarm@gmail.com) og ég redda því. Það er sérstaklega PC útgáfan sem hefur stundum lent í þessu. Er að reyna að laga þetta en eitthvað hjá Shopify hendir þessu út. Stundum.

Næst er að nefna það sem margir staldra við þegar þeir opna innsetningarforritið. Þeir sem setja forritið inn á pc-vél þurfa að hafa admin aðgang svo þeir geti sett upp á réttan hátt og brugðist rétt við. Makka-notendur þurfa líka að hafa samsvarandi leyfi til þess að hlaða inn nýjum forritum. Þar fyrir utan birtist spjald þegar innsetningarforritið er opnað sem lýtur út svipað og þetta:

Þetta er leyst með því að fara á makka í System Preferences > Privacy and Security í General flipann og velja Open anyway. Í grunninn er þetta eins á pc. Hef prófað það og það gekk fínt. Þetta er öryggisvörn svo ekki sé verið að hlaða inn innstetningarforritum með óværu. Til þess að ég geti losnað alveg við þetta þyrfti ég að skrá mig sem Developer hjá Apple, en það kostar slatta.

Þegar innsetningunni er lokið þarf að opna InDesign forritið en ekki opna neitt skjal fyrr en búið er að huga að nokkrum stillingum. Opnið InDesign > Prefereces > Dictionary. Myndin sýnir hvernig þetta á að líta út.

Stillingar í InDesign Preferences > Dictionary

Language: Icelandic fyrir Intel makka. Þetta er felligluggi og Icelandic á að vera á listanum. Ef Icelandic er ekki á listanum er líklegt að innsetningin hafi ekki heppnast af einhverri ástæðu. Reynið innsetninguna aftur.

Language: Estonian fyrir Silicon makka. Fyrir Silicon makkana, M1, M2 og svo framvegis Í þessu tilfelli þarf að nota Estonian bæði í Directory og í tungumálið fyrir skjalið sjálft. Ef ekkert heppnast hafið þá samband. Einn sem hefur gefist vel þegar allt virðis farið í skrúfuna er að fjarlægja InDesign með Creative Cloud forritinu og hlaða því inn aftur og svo Hunspell. Silicon útgáfan virkar vel á skjöl sem koma úr Intel-tölvum sem eru með stillt á Iceland.

Hyphenation: Hunspell. Ef notað hefur verið annað orðskiptiforrit áður gæti þurft að breyta hér.

Spelling: Hunspell. Já, það er líka hægt að láta Hunspell vaka yfir stafsetningu í InDesign. Mæli samt með prófarkarlestri. Ég minni á að ég hef útbúið ókeypis stafsetningarforritsinnsetninu byggt á Hunspell sem virkar með mjög mörgum forritum.

Double Quotes: Stillt eftir því tungumáli sem er verið að nota. „“ eða eins og 99 66 er íslenska útgáfan.

Single Quotes: ‚ ‘

Ef skjal væri opið meðan við settum upp þessar stillingar myndu þær bindast við það skjal. Okkur er því óhætt að opna núna nýtt skjal. Þegar textabendillinn er inni í textaboxi á að sjást „Icelandic“ í Character glugganum, í Control-glugganum og Properties-glugganum, allt í tengslum við Character. Hugsanlega þarf að setja „Icelandic“ á ef um eldra skjal er að ræða.

Control panel

Properties

Ekki er verra að festa Icelandic í málsgreinastílana (Paragraph Style) ef þörf krefur.

Paragraph Styles

Jæja, vonandi eyðir þessi pistill óvissu og kvíða sem einhverjir kunna að upplifa við innsetningu á Hunspell orðskiptingu og kennir kannski eitthvað smá í leiðinni sem nýtist. Hægt er að fínstilla orðskiptihegðun í Hyphenation og Justification. Það er reyndar mál sem ég stefni í að leiðbeina með síðar, hugsanlega á öðrum vetvangi.

Íslensk stafsetning á makka fyrir smotterí
Ég veit. Þetta var ókeypis en ég neyðist til þess að setja smá gjald á þetta.

Hunspell stafsetningarforrit sem kostar aðeins € 5, fimm evrur, eða um sjöhundruð krónur. Það virkar fínt í forritum sem fara eftir forskrift Apple eða eru frá Apple. Adobe og Microsoft eru sem sagt ekki með.

Forrit svo sem Mail, Keynote, BBEdit og mörg önnur eru móttækileg. Innsetningarforritið er í Lausnabúðinni og kostar bara € 5.

Eftir innsetningu er best að endurræsa tölvuna og eftir það að fara í System Preferences > Keyboard > Text og velja þar Íslenska (Library). Fyrir þá sem reglulega skrifa á fleiri tungumálum er hægt að velja Automatic by Language.

Ég er búinn að nota þetta nokkuð lengi og líkar vel. Þetta er alls ekki fullkomið, en hjálpar mikið samt.

Hunspell innsetning fyrir InDesign 2021 fyrir PC
Ég er frekar ánægður að segja frá því að nú er Hunspell útgáfa fyrir InDesign 2021 á PC komin í lausnabúðina. Það var nokkur þrýstingur á mig að gera þetta klárt fyrir Windows líka og ég vona (og veit) það þetta á eftir að gleðja nokkra. Ég er búinn að prófa og þetta svínvirkar.

Næst á dagskrá er að setja saman smá leiðbbeiningar um hvernig þetta er sett inn, bæði á mac og pc og þær stillingar sem þarf að setja svo allt gangi nú eins og í lygasögu. Tilkynning birtist von bráðar.

( Þessar útgáfur eru ekki lengur í búðarglugganum en hægt að kaupa leyfi á þær með því að hafa samband. sigurarm@gmail.com )

Hunspell innsetning fyrir InDesign 2021
Nýrri útgáfu af InDesign var fleytt af stað í gær, 20. október 2020. Útgáfan er númeruð 2021. Þetta kallar á nýja útgáfu af Hunspell innsetningunni. Ég hef unnið að henni síðustu vikurnar en það var ekki ljóst fyrr en í gærkvöldi með síðustu smáatriðin svo ég gæti klárað innsetningarforritið.

Þetta hefur verið bísna fróðlegt og skemmtilegt ár að reka svona búð á netinu. Ótal mál hafa komið upp hjá fólki og flest vandræði er hægt að leysa með því að lesa leiðbeiningarnar, bæði sem birtast við innsetninguna og/eða þær sem eru hér á síðunum. Ég er búinn að endurskrifa smáatriði í leiðbeiningunum til þess að loka öllum götum. Ekki hika við að senda mér póst samt ef eitthvað er óljóst.

Annað sem kemur einstaka sinnum fyrir er að hlekkurinn fyrir niðurhalið er útrunninn ef fólk bíður með að hala niður. Það borgar sig að vera ekkert að bíða með það.

Talandi um búðir, þá er ég að undirbúa að bæta aðeins við vöruúrvalið. Það gæti gerst innan tíðar og fólki verður ekki drekkt í auglýsingaflóði. Það verður tilefni í annan póst. Sem stendur eru póstar varla nema árlega

Hunspell fyrir mac er á sama stað og vanalega: https://lausnir.myshopify.com. Windows útgáfa er í vinnslu og kemur von bráðar.