Dindill.is - Forsíða
Ég gleymi orðum en man rímið
            <description><![CDATA[EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og hverju svararðu til, ef einhver spyr: „Er til salt?“ Aftur veit ég ekki með þig, en ég mundi hugsa: Allt. Síðan myndi ég ná í malt.
 Sjáðu til, ég á við ákveðið vandamál að stríða: Ég gleymi orðum, en man rímið.
            <author>Dindill.is</author>
Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu
            <description><![CDATA[SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í körfubolta milli menntaskóla í Norður Karólínu-ríki á sama tíma og hann var ljósmyndaður brosandi á golfvelli í fylgd með Tiger Woods í Flórída-ríki. Jordan hefur ekki viljað tjá sig um málið en fjölmiðlafulltrúi hans sagði að körfuboltahetjan hefði ekki verið á tveimur stöðum í einu enda „væri slíkt ekki mögulegt vegna þess að líkami Jordans væri bundinn lögmálum tíma og rúms líkt og annarra“.
            <author>Dindill.is</author>
Óli Tynes límir sig við hausinn á Jackie Chan
 Óli Tynes, fréttamaður, smurði lími á ennið sitt áður en hann hitti asísku kvikmyndastjörnuna Jackie Chan nú um helgina.
            <author>Dindill.is</author>
Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur
            <description><![CDATA[Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og hvatti stjórnarandstaðan eindregið til þess að það yrði dregið til baka. Samkvæmt höfundi frumvarpsins, Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra, á álagningin að auka tekjur ríkissjóðs og um leið sé hún til þess fallin að gera sjónvarpsefni fjölbreyttara.
„Álagningin á Ilmi er augljóslega nauðsynlegur þáttur í aðhaldsaðgerðum okkar og fyrsta skrefið af mörgum í tekjuöflun ríkissjóðs,“ sagði Steingrímur á Alþingi í gær. „Ilmur Kristjánsdóttir er vissulega hæfileikarík leikkona, en velgengni hennar hefur vaxið of ört á síðustu mánuðum og okkur fannst rétt að ríkið gripi til aðgerða til að jafna aðgengi annarra leikara að ljósvakamiðlunum. Hún er einfaldlega of sýnileg]]></description>
            <author>Dindill.is</author>
Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós
            <description><![CDATA[NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður rannsóknarinnar voru engar.
 Joshua Weidermann, prófessor í sálfræði við Stanford-háskóla í Bandaríkjunum, segir að rannsóknin hafi gengið vel á öllum sviðum og niðurstaðan sé þvert á ætlanir og spádóma fremstu fræðimanna heims. „Við athuguðum viðbrögð manna við mismunandi áreiti og könnuðum hvernig fólk tókst á við aðstæður sem það hafði aldrei upplifað áður. Úrtakið var stórt og mælingar ákaflega nákvæmar. Sameiginleg niðurstaða okkar var að rannsóknin hefði ekki leitt neitt sérstakt í ljós.“ 
 Miklar væntingar voru bundnar við einn þátt rannsóknarinnar sem fólst í því að athuga hvernig grænmetisætur brugðust við]]></description>
            <author>Dindill.is</author>
Eiður Smári gerir varamannabekkinn „kósý“ fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar
            <description><![CDATA[EIÐUR Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, situr ekki auðum höndum í undirbúningi Barcelona-liðsins fyrir úrslitaleik meistaradeildarinnar gegn Manchester United. Hann hefur undanfarna daga unnið hörðum höndum við að gera varamannabekkinn á Ólympíuleikvanginum í Róm sem allra huggulegastan fyrir leikinn.
            <author>Dindill.is</author>
Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla
            <description><![CDATA[SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur. Vofan endurraðar í sífellu skákmönnunum á borðinu í upphafi taflsins eftir reglum Fischer random-afbrigðisins af skák (einnig þekkt sem Chess960) þegar krakkarnir ætla að hefja tafl sín á milli.
            <author>Dindill.is</author>
Lebron James hittir þriggja stiga skoti með barni
            <description><![CDATA[EINKENNILEGT atvik átti sér stað í annarri viðureign Orlando Magic og Cleveland Cavaliers í undanúrslitum NBA-deildarinnar í nótt þegar ungabarni var skotið fyrir utan þriggja stiga línuna og beint ofan í körfuna. Trey Johnson, leikmaður Cleveland, tók innkast í þriðja leikhluta, fékk barnið í hendur frá dómaranum og gaf það um leið á helstu stjörnu liðsins, Lebron James, sem skaut barninu með hnitmiðuðu þriggja stiga skoti, beint ofan í körfuna. Cleveland komst þá í fyrsta skipti yfir í leiknum, 68:70.
Ekki er vitað með hvaða hætti barnið barst inn á völlinn. Boltinn þeyttist út af vellinum í þriðja leikhluta og svo virðist sem áhorfandi við hliðarlínuna hafi þóst ætla færa dómara leiksins boltann en fært honum barn sitt í hendur í staðinn. „Ég fékk,]]></description>
            <author>Dindill.is</author>
Húsleit í heitum potti athafnamanns
            <author>Dindill.is</author>
Guð blessi sykurskattinn!
            <description><![CDATA[Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla, Bounty eða piparmyntu-súkkulaðið ljúffenga Pipp (með dökku súkkulaði!). Sumir eiga sérstaka nammidaga, sem eru nánast heilagir í dagatalinu! ;) Það er nú allt í lagi. En hverjum finnst gott að skemma allar tennurnar sínar? :O Engum! Þess vegna finnst mér að hækka eigi verðið á sælgæti og óhollum gosdrykkjum. 
            <author>Dindill.is</author>